Ekki alltaf allt sem sýnist!
Nú á morgun er seinasta prófið & því ætti skrekkurinn að fara að fara & maginn að komast í lag, en ég er búin að vera svakalega illa haldin af magapínu undanfarna viku. Líklegast svona gríðarlegur prófkvíði, ekki vön að fá svona mörg próf á svona stuttum tíma. En ég er þokkalega sátt við hvernig hefur gengur. Ákveðin í að nýta jóla"fríið" til að skerpa á þeim fögum sem ég er slökust í, sama hvort að ég þurfi að taka úrbótapróf eður ei. Rölti bara niðrí skóla samferða Kjartani, þegar hann fer að vinna & heim með honum á kvöldin. Þetta finnst mér það skynsamlegasta sem að ég get gert, því ég hef í raun ekkert með það að gera að fara að ráða mig í vinnu 9-5 í 2 vikur...
En, ammili á morgun & ég hlakka svo til að gefa Kjartani gjöfina sem að ég er búin að vera með "í framkvæmd" í rúma tvo mánuði... hehe örugglega spenntari að gefa honum þetta, heldur en hann að eiga afmæli
Anýhú... læri læri or as ví sei in bissnessíngliss... studdí studdí
Rugluð í hausnum eftir öll þessi próf!!
Hvolpakveðja EvaHlín
Prófavika!!!
Var bent á voða sæta síðu sem að mig langaði að deila með ykkur, tilvalið svona í stuttu athyglishléi:
http://www.crushcalculator.com/content/love/458297247 Þetta er svona "skotinn í" útreiknari. Sætt.
En allavegana þá er ég enn á lífi þó að ég hafi háð svakalega baráttu við stærðfræðina í morgun! Til ykkar sem voruð að fá út úr prófunum ykkar í dag, óska ég þeim sem náðu öllu til hamingju með það- en til hinna hálfvitanna...æll sí jú in þe úrbóts
Nei nei auðvitað vonar maður að maður sleppi við símtal frá Lilju deildarstjóra, á aðfangadag - sem reyndar & alla aðra daga
Talandi um það... must lær
Muna svo að Kjartan á ammili á föstudaginn... vei ![]()
ehemÚrbótaehem prófakveðja EvaHlín
Varúđ!! Bloggfćrsla inniheldur óvćgar lýsingar!
Jah hérna hér! Allt að gerazt!
Fórum á danskt jóla „hlaðborð“ á föstudagskvöldið, með Hafdísi & Jóa Már – Fanney & Kidda – Rannveigu & Gísla – Jóhönnu & Halldóri, uppá Hraunsnefi (sveitahótelinu). Eitt orð: GEGGJAÐ!!! Endalaust mikið af mat, hver rétturinn eftir annan borinn fram – alls níu réttir. Vá hvað ég varð södd J
Svo var náttla þjónustan á Hraunsnefi alveg framúrskarandi & svo voru hvolpar...kommon þarf eitthvað meira til að gleðja hana EvuHlínSínSín???
En eftir að búið var að borða í einhverja fjóra tíma þá fóru þeir alhörðustu á dansiball uppá Hredda ( Einar ædól átti víst afmæli en ég tók nú minnst eftir því). Mikið svakalega var gaman að dansa J Ég & Jói Már tókum nokkra takta saman, just læk the old days, nema að í millitíðinni(þ.e. síðan við Jói Már dönsuðum seinast saman við Quarasi) varð ég eitthvað meira tískumeðvituð & fór að ganga í háhæluðum skóm...Segið mér pæjur landsins: hvernig er hægt að dansa eins & mófó á hælum?? Ég var ekki alveg að ná því, ekki hægt að hoppa & skoppa & rokka á hælum án þess að eiga á hættu að öklabrjóta sig – þannig að ég bara fór úr fínu háhæluðu stígvélunum mínum & dansaði á nælonsokkunum J Mikið rosalega var það sniðug hugmynd, þá gat mar sko hoppað & skoppa & verið ákaflega töff ( eða ekki, en það voru líklegast allir svo drukknir að það tók enginn eftir litlu mér J) En mergurinn málsins er sá að það er gaman að dansa!
Laugardagurinn var svo hinz vegar hræðilegur!!! Mikið skelfileg mistök eru það að fara & ætla að verzla í IKEA á laugardegi fyrir jól!! Vá hvað það er mikið til af fólki & mikið stress í gangi, já – ég veit að þetta hljómar dálítið eins & að ég búi úti á landi, & mikið rétt, þar bý ég & það stendur sko ekki til að flytja í „stórborgina Reykjavík“ á næstunni. Fann bara hvernig ég herptist öll saman & varð stíf, allt áreitið & það sem ég er blessunarlega laus við hérna í Borgarfjarðarsveitinni.
En svona til að toppa þennann dag þá, eða öllu heldur nóttina, þá vaknaði ég upp kl. 03:00 við eina litla (annars yndislega) útælda fimm ára frænku. Hún greyjið var svo veik & litla systir hennar líka ( sú er eins árs síðan í Júní). En sú minni var asskoti hress inn á milli sem að hún ældi allt út um allt hús, skríkti & var glöð!
Sunnudagurinn var svo ekki mikið skárri, báðar greyjin mjög veikar & þvottavélin gekk sem aldrei fyrr. Aldrei séð nokkuð þessu líkt áður, báðar lenntu þær í því að renna á hausinn á sinni eiginn ælu...OJ! Hárþvottur til að ná kögglum úr - Úff!! Lyktin... jæja ég er hætt – komin með illt í magann bara við að rifja þetta upp!
Núna er ég hinz vegar í gleðinni að uppgötva mér til mikillar skelfingar að prófin eru að fara að byrja á mánudaginn, skil ekki neitt, get ekki neitt & nenni ekki neinu!!!
Á endalaust langt í land til að ná að verða undirbúin & langar helst að grenja, sem ég hef jú gert- en mest af öllu langar mig að hætta, mig langar að gefast upp, mig langar að vera aumingi- en samt...þá bara tími ég því ekki- ég tími ekki að henda frá mér öllu þessu helv.. puði & erfiði!! Ef einhverntíman einhver er að fara í gegn um prófaviku ( já 5 próf á 5 dögum) á þrjóskunni þá er það ég!!! Brjálað pepp í gangi ég veit, en hvað er annað í boði??? Ekki fer maður að henda péníngunum, tímanum, svitanum & tárunum í ruslið & reynir ekki? Freistandi finnst mér það en ég hef eki samvisku til þess, ég bara verð.
Dugum eða drepumst!
Ofurhugakveðjur,
Eva Hlín
HAHAHAHA So TRUE so TRUE!!!
| You Are 56% Evil |
You are evil, but you haven't yet mastered the dark side.Fear not though - you are on your way to world domination. |







You are evil, but you haven't yet mastered the dark side.