Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: EvaHlín
  • Stađur: Borgarbyggđ
  • Atvinna: Nemi í Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst.
  • Hjúskaparstađa: Kjartan kćrasti, eitt barn & 2 hundar.
  • Um mig: Ég er ógó svöl & á fullt af fallegum vinum útum allan heim!!!

Auglýsing

Könnun

Ćtlaru ađ kíkja í kaffi í nýja húsiđ?

Mottó vikunnar

...brostu! Ţađ fer ţér betur...

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Wrong Place, Wrong Time Funny Images, Fu King Chinese restaurant Funny Images, A Kitten And A Parrot Funny Images, Sucks to live in Nairobi Funny Images, Exactly Funny Images, Sister Act

Lífiđ er gott...

24. ágúst 2007 klukkan 14:46
Sælt veri fólkið!

Nú er mín sæl & glöð Koss Flutt í Bjarkarhraunið & hef það ljómandi gott. Þvílíkt pláss, við eru að tala um heila 55,8 fm!! Gæti ekki verið betra, hvernig verðum við þegar húsið okkar verður tilbúið?? Það eru heilir 180 fm... ætli það verði svona... nei, hæjjj gaman að rekast á þig ástin... eða: Hei, langar þig að kíkja heim í stofu & spila körfubolta? eða fótbolta? Kannski, eða þá að ég verð hálft ár að sanka að mér nægjanlegu drasli til að troðfylla öll herbergin Glottandi

En já, lífið er gott. Erum að fara til Siglufjarðar á eftir & stefnan er að taka smá berjatínslu ef veðrið verður ekki þeim mun verra. Annars verður bara gaman að heimsækja tengdó & hina...

Hallan mín er komin til landsins með litla kútinn sinn, mikið agalega er hann vel gerður sá strákur. Toppeintak! Prufaði SLING-inn minn á hann (eða að bera hann í slingnum) & litli prins MALAÐI af hamingju... já hann malaði eins & köttur, ótrúlega sætt. Komst að því í leiðinni að slingurinn er sko málið, þvílíkt notalegt að bera barnið svona þétt upp við sig. Held að það sé mikið frelsi að hafa báðar hendur lausar & getað stússast en samt verið með barnið hjá sér.

Ekki mikið annað í fréttum svosem, skólinn byrjar eftir 10 daga eða svo, ég er búin að massa bókakaupin (Vá hvað þetta kostar!!) & er svosem alveg alveg að fara að byrja að lesa... right! En gott að vita að möguleikanum Hlæjandi 

Vonandi hafið þið það líka gott, haldið áfram að vera falleg...
Kv. Eva Hlín í gleðinni.

Íbúđarmálin!

15. ágúst 2007 klukkan 21:23

Vei vei vei, fengum lyklavöld af Bjarkarhrauninu í dag, reynar á eftir að tæma út húsgögn frá skólanum en ég er að vonast til þess að við getum troðið einhverju af dótinu okkar inn þrátt fyrir það, byrjað að ferja föt & slíkt yfir & inn í skápa. Svo eigum við pantaðann fluttningabíl á laugardaginn (hint hint fyrir þá sem vilja hjálpa að bera Hlæjandi
Ég mun reyndar ekki bera neinn fjandann, en vera þeim mun duglegri við að skipa fyrir & sjá um að staðsetja Glottandi 

Önnur hamingja er að nú er húsið okkar farið að rísa, vorum þar á áðan & hittum væntanlega nágranna okkar, alveg ferlega gaman að hitta þau & enn skemmtilegra að fá að sjá inn í húsin sem eru komin miklu miklu lengra en okkar (fólkið fyrir ofan okkur flytur inn um mánaðarmótin næstu!)
Fengum góða hugmynd um hvernig húsið okkar gæti litið út & það varð allt miklu raunverulegra.

Nokkrar vikur í að skólinn byrjar, byrjuð að sanka að mér bókum - vonandi að ég nái líka að byrja að lesa.. ehemm líklegt...

Unginn er hress & sprækur, fyrirferðameiri en áður - vil taka það fram að það fær enginn verðlaun fyrir að taka það fram að ég sé orðin ROOOOSSSALEG! Né heldur að efast um það að það sé BARA eitt barn þarna inni Öskrandi Þvílíkt sem að kúlan er búin að stækka undanfarnar 3 vikur, en ég geri mér samt grein fyrir því að það er hellingur eftir...

Kveð í bili, Eva Hlín

Nýtt lúkk!

11. ágúst 2007 klukkan 22:03
Hope U like it Svalur

Bleeezzzar!!

05. ágúst 2007 klukkan 18:15

Sælt veri fólkið.

Mikið er ljúft að vera ekki í útilegu Hlæjandi
Erum að passa húsið, hundinn & köttinn hennar Hafdísar vinkonu núna næstu vikurnar - erum alsæl að hafa allt þetta pláss útaf fyrir okkur!! Þrátt fyrir mikla gleði í hundunum þrem ( & "óútskýrð" hvörf matarkyns varnings af borðum!) er bara svakalega notarlegt að kúra heima í kósíheitum Koss

Stærstu fréttirnar undarfarið er náttla Jakob!! Litli stákurinn hennar Höllu vinkonu & hans Ginga súperstjörnu.
Búsældarlegur & mountain handsome gutti fæddur í Glasgow þann 21. júlí . Ég mun smella inn mynd af honum hér í myndaalbúmið til hliðar. Hlakka óskaplega mikið til þess að hitta hann í persónu - en mæðginin koma heim um miðjann mánuðinn.

Fleira á döfinni er náttúrulega:
  - fluttningur á Campus, sem verður nú ofsalega gaman að fá aðeins meira speis!! Ekki það að Sigrún & Tolli eiga allar heimsins þakkir skilið fyrir að redda okkur um húsnæði uppá Hreðarvatnsskála, því annars hefði ekki orðið mikið úr náminu mínu & stefnan væri kannski önnur í dag.
 - Byrja í skólanum aftur!! Vei vei. Er virkilega farin að hlakka til að byrja aftur að læra.
 - Tækla undirbúninginn fyrir komu Ungans af fullri alvöru, eigum ennþá eftir að græja okkur upp!! Algerlega óviðbúin eins & staðan er í dag! En við erum byrjuð að skoða hluti á netinu, velja vagn & slíka hluti. Nenni ekki að labba glórulaust um Smáralindina eða Kringluna & vita ekkert hverju ég er að leita að....
 - Sama sagan er um húsið okkar, erum byrjuð að skoða á netinu innréttingar & slíkt í sama tilgangi, takmarka glórulaust þramm!
 - Lifa & njóta...sem gengur so far vel & vonandi áfram Koss

Jæja. Þarna hafið þið smá uppfærslu á hvernig stúlkan hefur það, en ég er í sumargírnum í þessu blogg-dæmi & er ekki mjög virk... Líkt & svo margir aðrir Glottandi 

Kv. Eva Hlín Sín Sín

Sumar & sól

01. júlí 2007 klukkan 18:04
Sælt veri fólkið Brosandi

Komin heil að húfi frá Spáni,
glimrandi árangur í skólanum & allt á milljón hjá mér.

Líður yfir höfuð alveg ágætlega & er sátt við lífið & tilveruna.

Við Kjartan erum búin að festa kaup á húsi í Borgarfirði, sem er eins & er bara grunnur, en við fáum afhent í seinasta lagi í byrjun desember. Þá munum við flytjast þangað, litla sæta fjölskyldan... jebb hundarnir eiga von á samkeppni um athyglina Svalur Eigum von á litlum tvífættum(vonandi!) fjörkálfi í byrjum nóvember, þannig að það er ekki seinna vænna en að fara að koma sér upp framtíðarheimili!!!

Bara smá update svo enginn sé í myrkrinu um hvernig vindar fjúka hér á sléttunni Glottandi

Koss & knús, Eva Hlín

24. apríl 2007 klukkan 08:49

Jæja góðan daginn gott fólk.

Þá er uppryfjunarvikan byrjuð! S.s. verkefnalaus vika þar sem fyrirlestrar snúast um (í flestum tilvikum) að rifja upp mikilvægasta námsefnið á önninni.

Svo hefst hasarinn í næstu viku!! Jeha! 5 próf á 5 dögum & svo bara búin! Já eða vonandi, ef eitthvað kæmi uppá þá eru sjúkra-& úrbótapróf seinustu vikuna í maí. En þá eru allir sénsar búinir & eins gott að maður hafi náð ;)

Ég er reyndar furðu lítið stessuð orðin, það kemur væntanlega fljótlega. Vonandi ekki, þar sem ég var svo VEIK af stressi í jólaprófunum. Held að ég sé búin að læra meira inn á kerfið & sé þess vegna rólegri, já eða raunveruleikin ekki farið að kikka inn hjá manni. Bara 11 dagar eftir af þessum hluta námsins!! 

Ég sem hélt að ÉG ætti ekkert heima að fara aftur í skóla, að fyrri reynsla hefði markað minn námsferil þannig að mér myndi aldrei takast þetta, jú viðurkenni það að þetta er búið að vera erfitt & ég hef oft verið á því að hætta bara & vera ekki að gera mér þetta.... EN núna er ég SVO glöð Brosandi & merkilegast að ég er strax farin að sakna þess að vera FRUMA! 

Jæja kaffipása búin, nú verður maður að fara að refresha bókfærslukunnáttuna.

Bið ykkur vel að lifa, ég mun ekki tékka mig inn fyrr en eftir próf Glottandi Huxið vel til mín, takk! 

Allt ađ gerazt!

12. apríl 2007 klukkan 09:30
Mikið ljómandi er gaman að vera byrjaður aftur á milljón í skólanum!!! ARRRG! Ég er að drukkna, svei mér þá.

Var með eitthvað ákaflega merkilegt sem mér fannst ég þurfa að blogga um, en er búin að gleyma því... hmm...

Er farin að hlakka til að fara til útlandanna, förum til Spánar með fjölskyldunni hans Kjartans 30. maí. Verðum í tvær vikur í húsi ( sem ég er búin að sjá myndir af & það lítur VEEEL út!) stutt frá ströndinni í stóru hverfi, ekki langt frá Torreveja (eða hvernig sem það er skrifað).

Óðinn er búinn að þurfa að þola mikið grín af okkar hálfu þar sem hann hefur verið svo lítill að hann gat ekki hoppað uppí rúm! VAR! Hann fattaði í gær að hann kæmist líka & ég vaknaðu ekki sjaldnar en 4 sinnum til að henda honum útúr rúminu! Hann skildi ekkert afhverju ég var svona leiðinleg við hann... Sá hlær bezt sem síðast hlær!

Hei já ég man loksins það sem var svo merkilegt :c)

Ég er búin að fá staðfestingu fyrir skólavist á næsta ári, í félagsvísindadeildinni. Mun taka til við BA gráðu í HHS (Heimspeki, Hagfræði & Stjórnmálafræði). Ætlaði alltaf að taka þetta á 2 árum en núna er búið að breyta forsendunum fyrir því námi þannig að ég býst við að taka þetta á amk 2 1/2 ári ef ekki bara þremur. Það er allt í læ líka. En ég var glöð að fá inngöngu, þar sem ég er ekki einusinni búin að ná Frumunni :c) hehe, ekki það að ég ætli bara að hætta núna þar sem það eru bara 4 vikur eftir. Gleði, veit ekki, bæði farin að kvíða fyrir prófunum & sakna þess að vera búin. Mjög skrýtin tilfinning.

Enn er ekkert að frétta af íbúðinni minni. Lítið skoðað meir að segja. Bróðir minn er einnig að selja sína íbúð, hann er hjá Re/max & þeir auglýsa slatta, en sama staða hjá honum. Lítið skoðað. Held kannski bara að það sé rólegra yfir núna. Veit ekki. Kemur allt í ljós :c) Ég er fullkomlega bjartsýn!

Jæja, ætla að fara í kaffi.
Koss & knús EvaHlín

10. apríl 2007 klukkan 09:32

Jæja komin aftur heim í rokið Brosandi ´

Búin að hafa það óhemju gott á Siglufirði hjá Tengdó, mikið & vel huxað um mann þar. Erum varla búin að gera annað en að borða & sofa... þvílíkt frí! Ég er alveg endurnærð, samviskubitið yfir lærdómnum komið á sinn stað & allt eins & það á að vera!!

Við gáfum foreldrum okkar páskaegg sem vöktu mikla lukku, fengum reyndar líka að borða af þeim & þau voru ljómandi góð Glottandi

Mér er búið að líða vel eins & ég segi, fór á skíði í einu flottasta skíðasvæði landsins, Siglufjarðarskarði. Hélt að ég yrði ekki eldri!! Djöfull er maður orðinn lélegur, komst nokkrar ferðir & finn enn fyrir kálfunum, enganveginn eins & í "gömlu" daga þegar maður þvældist upp í fjall amk 3 kvöld í viku & að auki allar helgar! En gaman var þetta, aldeilis Hlæjandi

Kannski ekki margt frásögu færandi af mér núna, bara södd & glöð & allt gengur vel & samkvæmt áætlun...

Kv. úr gleðinni Eva Hlín

Skatturinn búinn...vei vei vei!

29. mars 2007 klukkan 08:26
Fanney, þessi færsla er fyrir þig & alla hina sem eru farnir að missa sjón sökum elli Glottandi
Kláraði að skila skattskýslunni minni í gær, djöfulsins vesen er þetta. Svo vantaði mig eina tölu þannig að ég vistaði & geymdi & ætlaði að skila þegar ég væri búin á leiksýningunni ( já, ég fór á leiksýningu...meira af því seinna). Þegar ég svo loksins kom heim, um hálf ellefu, þá náði ég bara ómögulega nettengingu, TAKK E-MAX! Ég þurfti s.s. að drösla mér
niðrí skóla, sat reyndar fyrir utan útí bíl afþví að ég nennti ómögulega inn. Jæja, jú smellti þessari einu tölu inn & "villuprófaði" rosa sniðugt, vantaði helling inn & ég þurfti að bruna aftur heim til að ná í meira af gögnum, svo aftur niðreftir til að ýta á SEND. En já, ég skil afhverju fólk frestar & frestar & frestar þessu, þetta var mitt fyrsta skipti sem ég geri skýrsluna alveg sjálf & ég sé ekki betur en að endurgreiðslan verði með slakara móti þetta árið, hlýtur að segja eitthvað... En jú ég er voða stolt að hafa skilað korter fyrir veittann viðbótarfrest, finnst ég svo sannur Íslendingur eitthvað!!

En já, ég fór að sjá Píkusögur í gær. Það voru Lionskonur úr Borgarnesi sem settu þá sýningu upp hjá okkur í skólanum í gær. Ég hef áður farið að sjá uppfærslu á Píkusögum (í Borgarleikhúsinu með henni Heru minni) & mér fannst þessar konur standa sig afskaplega vel. Allavegana varð úr prýðiskvöld, með afbragðsgóðum kleinum til hliðar Brosandi

Núna eru eftir 2 skóladagar fram að páskafríi, ég get varla beðið mig hlakkar svo til! Á reyndar eftir að gera eitt stykki Þjóðhagfræðiritgerð sem á að skila á mánudaginn, þannig að það er ekkert víst að ég verði búin fyrir helgi með hana, en SAMT, hlakkar til að fara í frí. Verðum fyrir norðan hjá foreldrum Kjartans & systkin hans líka. Svaka stuð í margmenni!!

Jæja, ég ætla að fara að fylgjast pínu með Normaldreifingunni í stærðfræði fyrirlestrinum... vei!

Páskakveðja EvaHlín

Bjart er yfir Betlehem..blikar, nei já ţađ er ekki páskalag- er ţađ?

19. mars 2007 klukkan 09:10
Ákaflega er nú leiðinlegt hvað ég er ódugleg við að setja fréttir af mér á netið, heimurinn hlýtur að þjást að fá ekki reglulegar fréttir af mér  

En jú ég er á lífi & hef það bara fínt þessa dagana, búin að vera slatta lasin að undanförnu, en nú sé ég fram á betri tíð með blóm í haga!

En í fréttum er þetta helzt að litla fallega íbúðin mín er komin á sölu & bíður núna bara eftir að eitthvað gott (& fallegt) fólk kaupi sig & eigi heimili í henni. Þið getið skoðað myndirnar af henni á þessari slóð: http://www.mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=238905
 Er mjög sátt með að vera að selja, ekki raunhæft að við myndum flytja þangað aftur eftir ca. 4 ár þegar ég verð loksins búin í náminu mínu. Er líka mjög spennt fyrir því að eiga heima í Borgarnesi. Held að það sé góð staðsetning fyrir svona úti-á-landi-lið eins & við Kjartan erum í raun & sann J  Skólinn gengur fínt, missti svolítið úr þegar ég var lasin, en ég er komin á skrið aftur núna.  Amma Björg verður áttræð núna á fimmtudaginn & það verður heljarinnar veisla henni til heiður, mikið hlakka ég til! Fjörugri frú er nú vandfundin & hrein unun að umgangast kellu þegar sá gállinn er á henni J  Hmmm, annað í fréttum... hmmm... man ekki eftir neinu sem mig langaði frekar að deila með ykkur. Jú, förum norður í sæluna um páskana, kannski að ég nái að henda inn færslu áður en það gerizt, veit ekki... vonandi! Koss & knús úr sveitinni Kv. Eva Hlín

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...