Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: EvaHlín
  • Stađur: Borgarbyggđ
  • Atvinna: Nemi í Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst.
  • Hjúskaparstađa: Kjartan kćrasti, eitt barn & 2 hundar.
  • Um mig: Ég er ógó svöl & á fullt af fallegum vinum útum allan heim!!!

Auglýsing

Könnun

Ćtlaru ađ kíkja í kaffi í nýja húsiđ?

Mottó vikunnar

...brostu! Ţađ fer ţér betur...

Nýjast á HumorPix

Funny Images, This is why I don't ride public transportation Funny Images, Before/After Elections Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right Funny Images, When you see it…

Kjellan er komin aftur!

27. júní 2008 klukkan 00:51
Búin að vera tölvulaus í einhverjar sex vikur... djös bömmer! En nú bíða betri tímar, litla ljúfa tölvan mín er komin með nýtt móðurborð... er það einhverskonar móðurlíf? Allavegana það á að vera voðalega gott fyrir hana. Kannski að ég verði bara duglegri að blogga líka, humm?

Allavegana, margt gerzt. Helsta helst er að húsið okkar er LOKSINS LOKSINS komið í utanyfirfötin, búið að bíða ansi lengi eftir því skal ég ykkur segja! Svo fáum við væntanlega gras um þarnæstu helgi, þá verður sko hægt að skála í blíðunni úti í garði Glottandi

Fórum í fjölskyldumyndartöku fyrr í kvöld, hlakka geggjað mikið til að sjá hvernig það heppnaðist. Held samt að það geti ekki klikkað - við erum öll nýbúin í yfirhalningu & liðið lúkkar sko aldeilis vel þessa dagana Hlæjandi Ég tók nefninlega skrefið & er með klippingu sem ég hef aldrei skartað fyrr... enn sem komið er er ég mjög sátt, var alveg kominn tími á breytingu á kellu.

Svo eru alltof miklar breytingar framundan, úff, er að byrja að vinna & Jökli litli fer í pössun!!! Er enganveginn tilbúin til að stíga það skref, en maður verður víst bara að herða sig taka þessu eins & manneskja (Innskot: verð pottþétt grenjandi á mánudagskvöldið af kvíða & fyrirfram söknuði.) En Jökull er að fara í beztu mögulegu hendur & veit að þetta verður ekki eins erfitt fyrir hann & mig, ég á bara eftir að sakna þess svo að geta verið til staðar alltaf alltaf!

Hvað er annað í fréttum? Guttalingur er kominn með tönnslur, tvær frammtennur að koma í neðri góm, ferlega sætur. Svo liggur honum á byrja að labba, hvað er málið með það? Varla farinn að skríða áfram því hann vill bara setjast upp & svo standa. Stendur upp við svona plastkassa á hvolfi & tekur svo skrefin þegar kassinn rennur áfram- algert rassgat, en þetta er samt stórhættulegt því hann hefur ekkert vit á því sem hann er að gera(held ég).

Jamm, hætti núna, komnar nýjar myndir ef þið voruð að velta því fyrir ykkur. Koss & knús, over and out.

Nýjar myndir!

02. apríl 2008 klukkan 15:11
Komnar nokkrar nýjar myndir af Jóni litla bónda Hlæjandi

Njótið.

Ken Lee vinir mínir!

20. mars 2008 klukkan 21:17
Vá hvað það er langt síðan ég hef hlegið svona mikið eins & við að horfa á eftirfarandi atriði!
http://www.youtube.com/watch?v=FQt-h753jHI
 

Sko, hef fengið athugasemdir um að ég sé ekki nægilega dugleg að setja inn myndir af afkvæminu: það er rétt, takk fyrir að taka eftir þessu - ykkur er vinsamlega bent á að koma bara í heimsókn Ullandi En svona í alvöru þá var ég að finna myndavélasnúruna sem "týndist" í flutningunum í gær & skal smella inn myndum á næstunni.

Hélt að ég ætti fleiri vini & kunningja sem myndu vilja að ég hefði númerið hjá þeim, en jafnvel sumir sem hafa kvittað (tvisvar ..ehem..) hafa ekki enn sent mér símanúmerið sitt. Hinum þakka ég fyrir Brosandi

Fjandans vesen!

01. mars 2008 klukkan 17:55
Halló allir, stutt færsla að sinni.

Gemsinn minn dó & með honum nánast ÖLL símanúmer vina & kunningja minna Gráta þannig að ég er fatlafól úti í horni! Væruð þið sem mögulega viljið að ég hafi einhverntímann samband við ykkur, senda mér sms með gemsanúmeri, heimasímanúmeri (ef þið eruð með svoleiðis) & afmælisdag fjöskyldumeðlima (svo ég fái ástæðu til að hafa samband Hlæjandi). Þá væri mér mikill greiði gerður & myndi sína mér hve margir það eru sem vilja að ég hafi samband við sig Glottandi

Erla, ég veit ég lofaði en ég hef svo lítinn tíma, set link á litlu ninjuna næst þegar ég blogga... and that´s a promise!

Jökull Jens er að verða svakalegur - farinn að velta sér á alla kanta & spyrna sér í allt, styttist í að hann verði skriðjökull held ég svei mér þá!
Krúttkveðjur úr sveitinni!

Ferlega flott pćling í öllu amstinu

07. febrúar 2008 klukkan 22:34
VERTU FLEKKLAUS Í ORÐI
Talaðu af heilindum. Segðu aðeins það sem þú meinar. Passaðu að nota ekki orðið gegn þér eða til að slúðra um aðra. Beindu krafti orða þinna í átt að sannleika og kærleika.

 EKKI TAKA NEITT PERSÓNULEGA
Ekkert sem annað fólk gerir er þín vegna. Það sem aðrir segja og gera er speglun af þeirra eigin veruleika, þeirra eigin hugarástandi. Þegar þú hættir að taka skoðanir og gjörðir annarra nærri þér, verðurðu ekki lengur fórnarlamb ónauðsynlegrar vanlíðunar.

  EKKI DRAGA RANGAR ÁLYKTANIR
Hafðu hugrekki til þess að spyrja spurninga og til að biðja um það sem þú raunverulega vilt. Hafðu samskipti þín við aðra skýr svo þú komist hjá misskilningi og sárindum. Þessi eina lífsregla getur umbreytt lífi þínu.

 
GERÐU ALLTAF ÞITT BESTA
Þitt besta mun breytast á hverju andartaki við ólíkar aðstæður. Burtséð hverjar kringumstæðurnar eru, gerðu einfaldlega alltaf þitt besta og þú munt hætta að fordæma, fara illa með þig og fyllast eftirsjá.


Sá þetta á blogginu hennar Katrínar vinkonu & stuldaði því. Hef alveg betra við tímann að gera en að stela af annara manna bloggum, en ég bara nenni því ekki. Langar svo mikið bara að liggja & krúsa á fjarsýringunni, en það er ekki búið að tengja sjónvarpið ennþá þannig að það væri svolítið sorglegt... 

En já, gerið ykkar bezta en ekki bara því sem þið nennið, það er sko lífsmottó til eftirbreytni. Nenni ekki meir Hissa góða nótt.

Komin heim í hús!

07. febrúar 2008 klukkan 22:16

Erum & eigum bara heima á einum stað, þvílíkur lúxus Hlæjandi

Erum auðvitað enn í kössum & svoleiðis, einfaldlega afþví að það er ekki búið að koma upp hillum til að troða draslinu í, en það er svosem allt í lagi - það er ekki eins & við séum að kafna í drasli því nóg er plássið Ullandi Er t.a.m. með sér HERBERGI fyrir þvottagrindurnar mínar, hí hí & þá er ég ekki að tala um þvottaherbergið mitt mú ha ha... Það á einhverntíman eftir að heyrast kvabb þegar ég fæ leið á að skúra þetta slot - en núna er ég einstaklega sátt.

Nágrannarnir verða líka sáttir um helgina þegar við setjum upp gardínurnar - annars erum við ágætlega dugleg að vera í náttfötum... svona oftast. Ekki það í dag hefur lítið sem ekkert sést inn því það er svo mikill snjór á rúðunum, voða jóla eitthvað. Var samt ekkert í jólagírnum þegar ég gallaði mig upp til að fara út að sækja bílinn. Í þrennar buxur & tvær úlpur fór ég & rölti mér með skóflu að Húsasmiðjunni því að Kjartan festi bílinn á leiðinni heim, hann fékk hjálp við að losa bílinn & geymdi hann á planinu hjá Húsó. Svo var gatan okkar mokuð & við ákváðum að sækja hann. Kom mér á óvart hvað það er notalegt að vera úti í svona "vibba" þegar maður er nógu asskoti dúðaður & með vindinn í bakið, ömurlegt að vera blautur, kaldur & élið í fanginu...

Litli kútur er svaka hress, eða svona oftast. Fór í 3ja mánaða skoðun á þriðjudaginn & fékk sprautu. Vá hvað hann var ósáttur. Byrjaði á því að hann fór í viktun & mælingu hjá hjúkkunni, auðvitað á berrassinu, svo biðum við smá eftir að fara inn hjá lækninum. Á meðan biðinni stóð var litli kall að naga á sér puttana ( sem er aðal spotið þessa dagana) svo þegar við komum inn til læknisins var Jökull RENNANDI blautur á bringunni & niður á maga. Létt grín var gert að þessu & þá upphófst svaka væl & var stubbur ekki sáttur við þessa byrjun mála. Svo róaði ég hann & lagði aftur á borðið & hann fékk að naga á sér hendurnar, ekkert mál, fékk fína skoðun (assjássöðu) & svo var sprautu stungiði á bólakaf í lærið á honum. ÆJJJ litla mömmuhjartað átti bágt - hann andaði ekki í amk hálfa mínútu & orgaði svo svakalega, örugglega ekki gott. En svo var allt búið & hann tók við að naga puttalingana aftur Brosandi

Lítið annað að segja, sit sátt í fallega sófanum sem við keyptum (rautt leður ummm svo fínt!) & spái í hvar væri bezt að hengja upp málverkin - lífsins flækjur Glottandi

Vonandi verður ekki stormur á morgun klukkan fjögur því að þá var ætlunin að fara í fyrsta ungbarnarsundtímann, ef af honum verður skal ég lofa að taka mynd & blogga um atburðinn...

Farið varlega & ekki láta Kuldabola bíta ykkur.
Knús.

Flutningar.is

17. janúar 2008 klukkan 19:33

Oh en gaman, eða þannig. Erum sumsé að flytja... Gæti huxað mér margt skemmtilegra en að standa í stappi við iðnaðarmenn & blæða peningum, en hey ég á allavegana einbýlishús Glottandi Þó svo að það sé ekki með klósetti né rennandi vatni, þá er það einbýlishús!!

En um helgina verður vinnuhelgi þar sem saklausum ættingjum verður smalað saman uppí Borgarnes undir því yfirskyni að "hafa það gaman saman" - little do they know!

Annað gengur eins & í sögu, ég er búin í prófunum & búin að fá að vita að ég fékk áttu í öðru en er að bíða eftir einkunn úr hinu... Massa sátt stelpa!

Jökull Jens er ÆÐI, ég skemmti mér alla daga yfir honum - bara týpísk ungamamma Ullandi En þetta tímabil er miklu skemmtilegra en ég bjóst við að það yrði. Það eru litlu hlutirnir sem að ég nýt, bros & nýr svipur - magn slefs sem svona lítið barn getur framleitt & hvað hann getur verið ótúlega einbeittur að horfa á birnina í Baby Björn stólnum sínum.

Hlakka mikið til að klára þennan seinasta flutning sem ég ætla mér að standa í - vonandi EVER! Þrífa & það allt, svo vonandi fær maður að njóta þess að vera í fæðingarorlofi & fara í ungbarnasund & solleiðis Hlæjandi Fengum reyndar meiriháttar slökun þegar ég var búin í prófunum, en þá fórum við norður til tengdó & höfðum það gaman & gott. Alltaf svo yndislegt að vera á Sigló - sér í lagi hjá tengdaforeldrum mínum.

ja annað er svosem ekki í fréttum, það  er ekki von á örðu bloggi fyrr en eftir að við fáum nettengingu heim í hús...Veit ekki alveg hvenær það verður.. Allavegana - Lifið heil & endilega kíkið í heimsókn ef það hellist yfir ykkur löngun að hjálpa til við að mála eða rykhreinsa...hehe! Kaffi í boði fyrir alla sjálfboðaliða & þeir sem afkasta einhverju fá jafnvel með'ðí Glottandi

Exstreem breastfeeding...

16. desember 2007 klukkan 00:35
... eða jaðrar-brjóstagjöf er nýtt sport sem ég stunda nú af kappi. Það gengur þannig fyrir sig að þáttakendurnir eru tveir, svangt barn & mjólkandi móðir sem býr við annríki. OK, svo er byrjað á því að vippa öðru brjóstinu út & smella svanga barninu að því... Þetta er að sjálfsögðu bara byrjunin & það sem allt venjulegt fólk kannast við sem brjóstagjöf... en þetta verður jaðarsport með þeim breytingum sem verða þegar hin mjólkandi móðir hefur ekki tíma til að sitja kyrr með barnið á brjóstagjafapúðaHlæjandi  Þá hefst fjörið nefninlega... Barninu er s.s. smellt á túttuna í allskonar hliðarstellingum svo að kella geti haldið áfram að "græja" það sem þarf, hvort sem það er að setja í þvottavél, brjóta saman þvott, moppa gólf eða læra fyrir próf.

Hinar ýmsu stellingar sem Jökli Jens hefur verið skellt í til þess að ég geti haldið áfram með smjörið - það merkilegasta við þetta allt saman að hann lætur sér fátt um finnast & drekkur bara af bestu lyst, jafnvel þó að ég sé að beyja mig niður þá sleppir hann ekki takinu & missir ekki úr takti.

Til að útskýra þetta undarlega "sport" þá ætla ég að reyna að útskýra sumar stellingarnar & hef ég nefnt þær öllum til yndis-& hægðarauka:

Rúgbý-boltinn: Þá er barnið í svipaðir stellingu & rúgbýbolti sem hlaupið er með undir hendinni. S.s. magi barnsins liggur að síðu móður & fætur þess hanga nokkurnveginn lausir í loftinu bak við móðurina, já & barnið nær taki á túttunni frá hlið... Fínt á hlaupum Hlæjandi

Kuðungurinn: Þá liggur barnið á bakinu á púða eða þykku teppi við hliðina á síðu múttu & tekur túttuna "afturábak". Kalla þetta kuðung því að fætur barnsins hafa ekki mikið rými & krakkinn þ.a.l. í dágóðu vöðli.
Fínt þegar múttan þarf að lesa en jafnframt skrifa, s.s. hafa bók í kjöltunni en eina hönd lausa til að glósa Glottandi

Bæseppinn: Þar er um að ræða hina "eiginlegu" brjóstagjafarstöðu, nema standandi. Reynir þ.a.l. mun meira á handleggsvöðvana til að halda barninu uppi & að líkamanum.
Fínt þegar maður þarf að beygja sig, t.d. þegar þarf að taka úr þvottavél.

Frammstaðan: Barnið snýr andlitinu að brjóstinu til að drekka, fætur niður & magi barns að maga móður.
Fín stelling þegar maður þarf að gefa standandi en er orðinn of þreyttur í höndinni fyrir bæseppinn.

Hnakkurinn: Eins & frammstöðustellingin, nema hvað að barnið situr klofvega á hnéi móðurinnar.
Þessi er bara sniðug Glottandi

& síðast en ekki síst, "skrýtna" staðan: Barnið liggur í rúmi á bakinu & mamman stendur yfir því - í öfugri átt.. S.s. líkamarnir ekki samhliða heldur á öndverðu meiði. Verð að viðurkenna að ég hef ekki prófað þessa sjálf en ef það er til eitthvað sem heitir "exstreem breastfeeding" þá á þessi heima á listanum Hlæjandi



Til hamingju međ afmćliđ Pabbi minn

11. desember 2007 klukkan 00:42
 Þar sem foreldrar mínir eru orðnir svo tæknivæddir að fylgjast með barnabarninu hér á blogginu er tilvalið að senda afmæliskveðjuna til pabba hérna, þó að ég nái henni ekki inn fyrir miðnættiKoss 
Vonandi hafi þið það gott!

Allt flott frá okkur að frétta, mér finnst reyndar óskaplega lítill tími aflögu - sem að útskýrir bloggleysið...

Það var hittingur með Lauga-gellunum, ofboðslega gaman - takk stelpur!! Skemmtilegt samt hvernig hittið snérist allt um brjóstagjöf & álíka áhugaverða hluti - FYRIRGEFÐU ERLA MÍN. Vona samt að þú leggir í annann hitting þegar þú kemur næst á klakann....þá verða kannski sögur af tanntöku & svoleiðis - ertu ekki spennt???

Allavegana, komnar nýjar myndir - njótið.
Kveðja úr sveitinni...

Dagarnir langir - gleđin mikil

20. nóvember 2007 klukkan 22:37

Sæl öll.

Þá erum við loksins komin heim aftur í fallegu sveitina okkar með nettengingunni Hlæjandi Stungum nefninlega af í hina sveitina, sumarbústaðinn okkar við Laugarvatn. Þvílík hamingja að vera í paradís í tæpa viku, verja þessum dýrmæta tíma til að kynnast litla manninum í lífinu okkar...oh hvað ég er væmin - en vá hvað ég meina þetta Glottandi

En litli harðstjórinn er alveg frábær gaur, harður verkstjórnandi eins & mamman - & ligeglad eins & pabbinn ( ef allt er í orden!)

Ætla að smella inn fleiri myndum strax á morgun, núna verð ég víst að opna mjólkurbúið Ullandi

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...